Þórshöfn verður heiðursheimahöfn varðskipsins Þórs
Hafnarnefnd Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að Þórshafnarhöfn verði heiðursheimahöfn varðskipsins Þórs. Ástæðan er auðvitað sama skírskotun Þórshafnar og varðskipsins Þórs til nafns á þrumuguðinum Þór. Hafnarstjórn samþykkti ennfremur að sem heiðursheimahöfn skipsins væri það undanþegið hafnargjöldum en höfnin mun vera sú eina á landinu þar sem varðskipið getur komið til hafnar án þess að greiða hafnargjöld. Skjalið staðfestir þessa samþykkt hafnarstjórnar.
Á myndinni til hægri afhendir Jónas Egilsson hafnar- og sveitarstjóri, skipherranum Páli Geirdal skjal af þessu tilefni. Á myndinni til vinstri eru yfirmenn á varðskipinu ásamt hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar. Viðstaddir athöfnina um borð í Þór voru sveitarstjórn Langanesbyggðar og hafnarstjórn Þórshafnarhafnar ásamt yfirmönnum varðskipsins.