Fara í efni

Þyrla á Akureyri

Fundur
22.04.2007Á fundi hreppsnefndar Langanesbyggðar föstudaginn 20. apríl sl. var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða m.a.:"Hreppsnefnd Langanesbyggðar lýsir yfir stuðningi sínum við ályktun læknafélags

22.04.2007
Á fundi hreppsnefndar Langanesbyggðar föstudaginn 20. apríl sl. var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða m.a.:

"Hreppsnefnd Langanesbyggðar lýsir yfir stuðningi sínum við ályktun læknafélags Íslands, dags. 27.03.07, þess efnis að mikilvægt sé, út frá bæði öryggis- og þjónustusjónarmiðum, að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar verði staðsett á Akureyri.

  Hreppsnefnd Langanesbyggðar beinir því til ríkisstjórnar Íslands að um þetta verði tekin ákvörðun strax og þannig verði stigið skref í þá átt að allir íbúar landsins sitji við sama borð varðandi þjónustu við bráðveika og slasaða.

Framangreindu er hér með komið á framfæri!
Með bestu kveðjum

Björn Ingimarsson
sveitarstjóri Langanesbyggð
S: 468 1220, GSM: 895 1448