Tilkynning frá Sóknarnefnd Þórshafnarkirkju
01.01.2016
Fréttir
Jólin nálgast með sinni gleði- og friðarhátíð og er því dapurlegt að þurfa að segja frá því að skemmdarverk hafa verið unnin á Þórshafnarkirkju.
Jólin nálgast með sinni gleði- og friðarhátíð og er því dapurlegt að þurfa að segja frá því að skemmdarverk hafa verið unnin á Þórshafnarkirkju.
Á skömmum tíma hafa verið brotnar fimm rúður í kirkjunni og nú um helgina var jólatréð við kirkjuna keyrt niður.
Því miður virðist þarna eingöngu vera um skemmdarfýsn að ræða.
Við teljum núna að nóg sé komið og það er von okkar að þetta fallega Guðs hús njóti þeirrar virðingar sem því ber og það fái að standa í friði framvegis.
Sóknarnefnd