Fara í efni

Tjaldstæði Þórshafnar

Tjaldsvæðið okkar er ofarlega í þorpinu á kyrrlátum og notalegum stað. Þaðan er öll þjónusta í þorpinu í göngufæri. Aðstaða á tjaldsvæðinu er góð, þar eru borð og bekkir, salernisaðstaða, rafmagn
Tjaldsvæðið okkar er ofarlega í þorpinu á kyrrlátum og notalegum stað. Þaðan er öll þjónusta í þorpinu í göngufæri. 
Aðstaða á tjaldsvæðinu er góð, þar eru borð og bekkir, salernisaðstaða, rafmagn og aðstaða fyrir hjólhýsi og húsbíla.
Í íþróttahúsinu Verinu sem er örskot frá tjaldstæðinu er aðstaðan til fyrirmyndar. Þar er stór og góð innisundlaug og heitir pottar, íþróttasalur og líkamsrækt. Þar er einnig upplýsingamiðstöðin staðsett og ýmis önnur aðstaða fyrir ferðamenn, t.d. þvottavél og þurrkari, netaðgangur og heitur reitur.
Við íþróttahúsið er sparkvöllur þar sem oftar en ekki er hægt að finna bæði með- og mótspilara.

Á Þórshöfn má finna alla almenna þjónustu s.s. heilsugæslu og apótek, veitingastað og skyndibitastað, verslun og beinsínstöð, bifreiða- og dekkjaverkstæði, pósthús og banka.