Fara í efni

Tónleikar í Langanesbyggð: Kór MH - Enginn aðgangseyrir

Fréttir
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður með tónleika í Þórshafnarkirkju laugardaginn 9. apríl kl. 20:30. Allir velkomnir-enginn aðgangseyrir! Kórinn syngur einnig við messu í Skeggjastaðakirkju sunnudaginn 10. apríl kl. 13.00 og heldur tónleika í Þórshafnarkirkju fyrir grunnskólanemendur í Langanesbyggð mánudaginn 11. apríl kl. 13.00.

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður í tónleikaferð um Norður- og Norðausturland dagana 8. - 11. apríl. Kórinn heldur tónleika í Þórshafnarkirkju laugardagskvöldið 9. apríl kl. 20:30. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

 

Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt, kórinn flytur bæði þjóðlög frá ýmsum löndum og tónverk m.a. eftir Giovanni Gastoldi, J. S. Bach, Carl Orff, Jón Þórarinsson, Jón Nordal, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson og Huga Guðmundsson. Kórinn syngur á 10 tungumálum.


Á þessari önn eru 85 nemendur í kórnum og meðal þeirra eru margir hljóðfæraleikarar. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir og fararstjórar í tónleikaferðinni eru Lárus H. Bjarnason rektor Menntaskólans við Hamrahlíð og Orri Páll Jóhannsson fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefnd MH.
Þetta er í fyrsta sinn sem Kór MH heimsækir Langanesbyggð.
Auk tónleikanna í Þórshafnarkirkju syngur kórinn við messu í Skeggjastaðakirkju sunnudaginn 10. apríl kl. 13 og heldur tónleika fyrir grunnskólanemendur í Langanesbyggð mánudaginn 11. apríl kl. 13.