Fara í efni

Umbótastarf í Grunnskólanum á Bakkafirði

Fréttir
Grein Ingvars Sigurgeirssonar, Maríu Guðmundsdóttur og Bylgju Daggar Sigurbjörnsdóttur sem segir frá skólastarfi á Bakkafirði, örsmáu sjávarþorpi á Norðausturlandi birtist í Netlu - veftímariti um uppeldi og menntun fyrir stuttu

Grein Ingvars Sigurgeirssonar, Maríu Guðmundsdóttur og Bylgju Daggar Sigurbjörnsdóttur segir frá skólastarfi á Bakkafirði, örsmáu sjávarþorpi á Norðausturlandi. Þar hafa kennarar gengið lengra en flestir kennarar annarra grunnskóla í þá átt að leyfa nemendum að taka ábyrgð á eigin námi. Í íslensku og stærðfræði vinna elstu nemendur skólans eftir einstaklingsbundnum áætlunum sem þeir eiga sjálfir þátt í að móta. Í samfélagsgreinum og náttúrufræði fást þeir við fjölbreytt og sjálfstæð viðfangsefni, ýmist einir eða fleiri saman. Nemendur ráða viðfangsefnum sínum og efnistökum að mestu og stundum alveg. Áhugi nemenda hefur verið mikill og farið fram úr björtustu vonum. Sama máli gegnir um þátttöku þeirra í mótun verkefna. Í mörgum tilvikum ákveða nemendur að tengja viðfangsefnin miðlun og skapandi vinnu með lifandi flutningi, myndrænni tjáningu, leikþáttum, kvikmyndagerð og sýningum. Nemendur fá að sinna þessum verkefnum ellefu kennslustundir á viku eða um þriðjung skólatímans. Nemendur og kennarar skiptast á um að velja þemu eða viðfangsefni. Í greininni er sagt frá aðdrag-anda þessara kennsluhátta og gefin dæmi um verkefni sem nemendur hafa valið að fást við.

/netla.hi.is/