Slæm umgengni á leikskólalóðinni á Þórshöfn
27.08.2014
Fréttir
Borið hefur á slæmri umgengni á leikskólalóðinni á Þórshöfn. Þar hafa hlutir/leiktæki skemmst, verið færðir til og einnig verið skilið eftir rusl.
Borið hefur á slæmri umgengni á leikskólalóðinni á Þórshöfn. Þar hafa hlutir/leiktæki skemmst, verið færðir til og einnig verið skilið eftir rusl.
Börnum er velkomið að leika sér á leikskólalóðinni en með því skilyrði að þau gangi vel um og skemmi ekki
leiktæki.
Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að ræða þetta við börn sín til að reyna eftir mætti að koma í veg fyrir þessa
slæmu umgengni.