Umsagnir Langanesbyggðar um kvótafrumvörp
Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur sent atvinnuveganefnd Alþingis umsagnir við frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og um veiðigjöld.
Í umsögn Langanesbyggðar um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða kemur m.a. fram:
Sveitarstjórn Langanesbyggðar óttast að fyrirkomulag það sem frumvarpið boðar við stjórn fiskveiða, leiði ekki aðeins til óhagræðis og sóunar, heldur einnig pólítískrar spillingar. Frumvarpið vegur jafnframt að heilu byggðalögunum, starfsöryggi fiskvinnslufólks, sjómanna og útgerðarfyrirtækja sem eru burðarásar búsetu á landsbyggðinni og þar með kjörum þeirra fjölskyldna sem eiga afkomu sína undir fiskveiðum og vinnslu.
Það er þess vegna krafa sveitarstjórnar Langanesbyggðar að frumvarpið verði dregið til baka og unnið að nýju.
Í umsögn Langanesbyggðar um frumvarp til laga um veiðigjöld kemur m.a. fram:
Það er mat sveitarstjórnar Langanesbyggðar að umrætt frumvarp til laga um veiðigjöld muni hafi gríðarlegar og ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir sveitarfélagið. Hagsmunir sjávarbyggða á borð við Langanesbyggð fara saman við hagsmuni öflugra sjávarútvegsfyrirtækja. Ljóst er að veiðigjöldin sem frumvarpið boðar yrðu afar íþyngjandi fyrir rekstur þeirra. Þannig myndi frumvarpið leiða til verulegs samdráttar í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækjanna og þar af leiðandi draga úr umsvifum þeirra í sjávarbyggðunum. Uppbyggingu og árangri síðustu ára í atvinnulífi Langanesbyggðar yrði stefnt í voða og búsetuskilyrði í sveitarfélaginu rýrð.
Við slíkt getur sveitarstjórn Langanesbyggðar ekki unað og krefst þess að umrætt frumvarp verði dregið til baka.