Umsókn um garðslátt
30.05.2023
Fréttir
Skv. reglum sveitarfélagsins eiga aldraðir og öryrkjar rétt á garðslætti tvisvar á sumri.
Formsins vegna eru þeir sem óska eftir garðslætti hjá sér vinsamlega beðnir um að senda tölvupóst á þjónustumiðstöð, thjonustumidstod@langanesbyggd.is , eða hringja í síma 8635198.
Nafn umsækjanda og heimilisfang þarf að koma fram.
Skrifstofustjóri