Fara í efni

Umsóknarfrestur um bjargnytjar er til 2. maí

Fréttir
Minnum á að frestur til að skila inn umsóknum um bjargnytjar er til kl 12:00 2. maí n.k. Umsóknum skal skila í lokuðum umslögum merktum “BJARGNYTJAR” á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn.

Í samræmi við úrskurð Hæstaréttar 25.11.06 nr. 72/2006. Umsóknum skal skila í lokuðum umslögum merktum “BJARGNYTJAR” á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar fyrir fimmtudaginn 2. maí nk. kl. 12:00 og verður þá dregið úr umsóknum að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.

Langanesbyggð auglýsir til umsóknar heimild til bjargnytja í Skoruvíkurbjörgum samkvæmt neðanskráðu:
Úthlutað verður heimild til svartfugls- og ritu eggjatöku á eftirtöldum svæðum:
Eggjataka: (Svartfuglsegg)
1. *)Frá Ytri-Bjarghúsum í botn að Ystanefi (50 egg)
2. Frá Ystanefsbotni að Skipagjá (50 egg)
3. Eggjataka við Selhellu (50 egg)
Eggjataka: Skegluegg(Rituegg)
4. Í Skipagjá (20 egg)
5. Frá Skipagjá til og með Gatabás (20 egg)
6. Frá Gatabás að Svínalækjatanga (20 egg) *)

Í samræmi við úrskurð Hæstaréttar 25.11.06 nr. 72/2006. Umsóknum skal skila í lokuðum umslögum merktum “BJARGNYTJAR” á skrifstofu Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar fyrir fimmtudaginn 2. maí nk. kl. 12:00 og verður þá dregið úr umsóknum að viðstöddum þeim umsækjendum sem þess óska.

Skilyrði heimilda eru:
1. Að umsækjandi eigi lögheimili í Langanesbyggð ásamt því að hafa reynslu af bjargnytjum.
2. Tilgreina skal í umsókn þá einstaklinga sem hyggjast stunda björgin ásamt umsækjanda og aðeins ein umsókn verður tekin til greina frá hverjum hóp og aðilum innan þess hóps.
3. Engum einstaklingi eða hóp verður úthlutað meiru en einu svæði(nema að engar umsóknir liggi fyrir, vegna ákveðinna svæða), en frjálst er að sækja um þau öll. Umsækjendur skulu því taka fram í umsókn sinni hvaða svæði þeir vilji fá til vara.
4. Vafaatriði úrskurðast af sveitarstjóra.

Sú kvöð fylgir bjargnytjum að þeir sem fá þeim úthlutað láti egg af hendi, endurgjaldslaust til eggjahátíðar í tengslum við sjómannadag á Þórshöfn). Nánari útfærsla verður kynnt við úrdrátt umsókna fimmtudaginn 2. maí nk.

Þórshöfn 24. apríl 2013
Sveitarstjóri