Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs sem fram fer þann 20. október 2012, er hafin við embætti sýslumannsins á Húsavík.
Skrifstofa embættisins er opin virka daga á milli kl. 9:30 15:00. Opið verður fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu laugardaginn 13. október og sunnudaginn 14. október frá kl. 12:00 til 14:00. Á kjördag verður opið frá kl. 10:00 til 12:00.
Auk þess verður hægt að kjósa utankjörfundar á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Skútustaðahrepps, mánudaginn 15. október kl. 10:00 - 12:00.
Skrifstofu Þingeyjarsveitar, mánudaginn 15. október kl. 14:00 - 16:00.
Skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 16. október kl. 9:30 - 10:30.
Skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn, þriðjudaginn 16. október kl. 12:00 - 13:00.
Lögreglustöðinni á Þórshöfn, þriðjudaginn 16. október kl. 15:00 - 16:00, en einnig samkvæmt ákvörðun lögreglumanns á vakt.
Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á vefslóðinni: http://www.kosning.is/
28. ágúst 2012
Sýslumaðurinn á Húsavík