Fara í efni

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Fréttir
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga laugardaginn 27. apríl 2013 er hafin. Skrifstofa embættisins er opin virka daga á milli kl. 9:30–15:00.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga laugardaginn 27. apríl 2013 er hafin.
Skrifstofa embættisins er opin virka daga á milli kl. 9:30–15:00.

Opið verður fyrirutankjörfundaratkvæðagreiðslu laugardaga og sunnudaga í apríl frá kl. 12:00 til 14:00.
Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl, frá kl. 10:00 til 14:00.
Á kjördag verður opið frá kl. 10:00 til 12:00.

Auk þess verður hægt að kjósa utan kjörfundar á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu Skútustaðahrepps, mánudaginn 22. apríl kl. 10:00-12:00.
Skrifstofu Þingeyjarsveitar, mánudaginn 22. apríl kl. 14:00-16:00.
Skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 23. apríl kl. 9:30-10:30.
Skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn, þriðjudaginn 23. apríl kl. 12:00-13:00.
Lögreglustöðinni á Þórshöfn, þriðjudaginn 23. apríl kl. 15:00-16:00, en einnig samkvæmt ákvörðun lögreglumanns á vakt.

Umsóknir um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skulu hafa borist eigi síðar en fjórumdögum fyrir kjördag

Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á vefslóðinni:http://www.kosning.is

2. mars 2013

Sýslumaðurinn á Húsavík