Fara í efni

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Fréttir
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnakosninga 31.05 2014

UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLA 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnakosninga, sem fram eiga að fara þann 31. maí 2014, er hafin við embætti sýslumannsins á Húsavík. 
Skrifstofa embættisins er opin virka daga á milli kl. 9:30 – 15:00.  Jafnframt verður hægt að kjósa laugardaginn 24. maí og sunnudaginn 25. maí frá kl. 10:00 – 12:00, uppstigningardag, 29. maí frá kl. 10:00 – 12:00 og á kjördag frá kl. 10:00 – 12:00.
Auk þess verður hægt að kjósa utankjörfundar sem hér segir:

  • Á skrifstofu Þingeyjarsveitar, mánudaginn 26. maí kl. 14:00 – 16:00.
  • Á skrifstofu Norðurþings á Kópaskeri, þriðjudaginn 27. maí kl. 9:30 – 10:30.
  • Á skrifstofu Norðurþings á Raufarhöfn, þriðjudaginn 27. maí kl. 12:00 – 13:00.
  • Á lögreglustöðinni á Þórshöfn, þriðjudaginn 27. maí kl. 15:00 – 16:00, en einnig er hægt að kjósa skv. ákvörðun lögreglumanns á vakt.
    Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á vefslóðinni: http://www.kosning.is 

Sýslumaðurinn á Húsavík
14. maí 2014