Fara í efni

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

Fréttir
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016 fer fram á skrifstofum embættisins sem hér segir:

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016 fer fram á skrifstofum embættisins sem hér segir:
    Akureyri, Hafnarstræti 107, virka daga frá kl. 9:00 til 15:00.
      Frá 13. júní er opið til kl. 18:30.
      Laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. júní er opið frá kl. 14:00
      til 17:00.
      Laugardaginn 25. júní er opið frá kl. 10:00 til 18:00.
    Húsavík, Útgarði 1, virka daga frá kl. 9:00 til kl. 15:00.
      Laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. júní er opið frá kl. 14:00
      til 17:00.
    Siglufjörður, Gránugötu 6, virka daga frá kl. 9:00 til 15:00.
      Laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. júní er opið frá kl. 14:00
      til 17:00.
    Dalvík, Ráðhúsinu, virka daga frá kl. 9:00 til 13:00.

Frá 6. júní fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla einnig fram á virkum dögum sem hér segir:

    Grýtubakkahreppur: Túngötu 3, Grenivík, frá kl. 10:00 til 15:00.
    Þingeyjarsveit: Kjarna, Laugum í Reykjadal, frá kl. 10:00 til 15:00 en til kl. 12:00 á föstudögum.
    Skútustaðahreppur: Hlíðarvegi 6, Reykjahlíð, frá kl. 9:00-12:00 og 13:00-15:00 en föstudaga frá
      kl 9:00 til             12:00.
    Þórshöfn: Fjarðarvegi 3, frá kl. 10:00 til 15:00.
    Kópasker: Bakkagötu 10, frá kl. 8:00 til 16:00.
    Raufarhöfn: Aðalbraut 6, mánudaga, fimmtudaga og föstudaga, frá kl. 12:00 til 15:00.
    Hrísey: Skrifstofu Akureyrarbæjar í Hrísey, frá kl. 8:00 til 13:00, og skv. samkomulagi.
    Grímsey: Skrifstofa kjörstjóra, Miðtúni, skv. samkomulagi.

Kjörstaðir verða lokaðir þann 17. júní.

Minnt er á að kjósendur hafi persónuskilríki meðferðis.

Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl.16 fjórum dögum fyrir kjördag.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum mun fara fram í samráði við forstöðumenn þeirra og verður auglýst frekar innan viðkomandi stofnana.

Kosningavefur innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is, hefur að geyma margvíslegar upplýsingar varðandi forsetakosningarnar.

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
3. júní 2016
Svavar Pálsson