Verkalýðsfélagið styður við blakíþróttina
19.01.2016
Fréttir
Verkalýðsfélag Þórshafnar styrkir Verið um 100.000 kr til kaupa á áhöldum í blak. Búið er að kaupa tvö net og voru þau afhent í dag.
Verkalýðsfélag Þórshafnar gefur íþróttahúsinu 100.000 kr til kaupa á áhöldum í blak. Búið er að kaupa tvö net og voru þau afhent í dag.
Mikill áhugi er á blaki á Þórshöfn og á síðasta ári var kvennaliðið Álkurnar stofnað. Þær vígðu nýju netin á æfingu í kvöld.
Hér má sjá Ránar og Heiðrúnu veita netunum viðtöku fyrir hönd hússins og liðsins og var það Kristín Kristjánsdóttir starfsmaður VÞ sem afhenti þau. /HS
Álkurnar ásamt þjálfaranum Árna Sig