Fara í efni

Verndum þau - Námskeið

Fundur
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna. Farið verður yfir hvernig bregðast eigi við vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er byggt á bókinni Vernd

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna. Farið verður yfir hvernig bregðast eigi við vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er byggt á bókinni Verndum þau.

Á námskeiðinu er farið yfir:
 Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
 Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
 Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.

Næstu námskeið verða haldin 27. nóvember kl. 17.30 20.30 í Menntasetrinu á Þórshöfn og 28. nóvember kl. 17.30 20.30 á Grænatorginu, Húsavík.

Skráning og upplýsingar eru í síma 896 3107 eða hjá hsth@hsth.is
Skráningafrestur rennur út 23. nóvember kl. 16.00. Náist ekki 10 manna skráning fellur námskeiðið niður. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.