Viðburðadagskrá eldri borgara í Langanesbyggð og Svalbarðshreppi
Vikulegir viðburðir:
Mánudagar:
Upplestur á Nausti kl 14:00 þar sem Kristín Kristjánsdóttir les framhaldssögu.
Þriðjudagar:
Heilsueflingarhópur hittist í íþróttahúsinu Ver kl 11:00. umsjón: Kristjana Þuríður Þorláksdóttir hjúkrunarfræðingur.
Opið hús og heitur matur í hádeginu á Nausti fyrir eldri borgara.
Glatt á hjalla í Glaðheimum frá kl 14:00-16:00. Þar er spjallað, prjónað, föndrað, spilað, séra Brynhildur Óladóttir kemur í heimsókn og þetta er síðan kryddað með léttri dagskrá. Boðið er uppá heimilislegar kaffiveitingar.
Miðvikudagar:
Vatnsleikfimi í sundlauginni frá kl 16:00-17:00. Kennari Þorsteinn Ægir. Kristjana Þuríður Þorláksdóttir, hjúkrunarfræðingur verður með í tímum og aðstoðar þá sem vilja.
Dagsetningar á stökum viðburðum:
6. nóvember: Spilabingó sem Haraldur Sigfússon stjórnar. Þjóðlegur fróðleikur í flutningi eldri borgara. - Glaðheimar frá kl 14-16
10. nóvember: Félag eldri borgara fer út að borða í Svalbarðsskóla kl 19. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 8. nóvember.
13. nóvember: Fræðandi erindi. Gátur, gleði og gaman. Gestur dagsins Kristín Kristjánsdóttir á Syðri-Brekkum - í Glaðheimum frá kl 14-16.
14. nóvember: Fundur hjá Félagi eldri borgara í Glaðheimum kl 17 .
20. nóvember: Spilabingó, stjórnandi Haraldur Sigfússon. Skemmtisögur, skrýtlur og gátur sem eldri borgarar koma með og flytja. - í Glaðheimum frá kl 14-16.
27. nóvember: Síðdegisdans og söngur.-í Glaðheimum frá kl 14-16.
4. desember: Kaffihúsastemning í Glaðheimum. Óli og Gunnlaugur skapa stemninguna. Frá kl 14-16.
11. desember: Lesið upp úr nýútgefnum jólabókum. Piparkökur og jólaglögg. - í Glaðheimum frá kl 14-16.
12.desember: fundur hjá Félagi eldri borgara í Glaðheimum kl 17 .
Nánari upplýsingar um dagskrá Naust og Glaðheima, gefa Bjarnveig í síma 468 1290 / 863 1290 og Kristín í síma 468 1352, Félag eldri borgara Björgvin í síma 468 1219. Heilsueflingarhópur Kristjana í síma 464 0603