Viðskiptatækifæri á Þórshöfn.
27. október 2011
Til sölu veitingastaðurinn Eyrin á Þórshöfn
http://www.eyrin.is/
Vegna breytra aðstæðna selst húsnæðið nú ekki með rekstrinum, en langtíma húsaleiga er í boði fyrir réttan aðila.
Tilboð óskast því í reksturinn í heild án húsnæðis.
Öll tæki, borðbúnaður, innanstokksmunir, lager, viðskiptavild og fleira. (Möguleikar á yfirtöku á láni.)
Staðurinn er í fullum rekstri allt árið um kring.
Og hefur sæti fyrir 60-70 manns. Háannatími er frá maí til október en mikil umsvif á Þórshöfn hafa breytt rekstrinum mikið síðustu 3 ár, og það er stigvaxandi velta milli ára.
Hentugt fyrir samhent hjón, tvenn pör eða einstaklinga sem státa af ríkri þjónustulund og langar til að starfa sjálfstætt.
Miklir möguleikar eru í auknum ferðamannastraumi á norðausturlandi, og því endalausir möguleikar fyrir duglegt fólk.
Nánari upplýsingar gefur Nanna í síma 868-8647 og nannast@internet.is Fyllsta trúnaðar er gætt varðandi fyrirspurnir.