Viðtalstími Félagsráðgjafa Félagsþjónustu Norðurþings í desember
28.11.2016
Fréttir
Signý Valdimarsdóttir félagsráðgjafi Félagsþjónustu Norðurþings, verður til viðtals þriðjudaginn og miðvikudaginn 13. og 14. desember á Þórshöfn. Hægt er að bóka ...
Signý Valdimarsdóttir félagsráðgjafi Félagsþjónustu Norðurþings, verður til viðtals þriðjudaginn og miðvikudaginn 13. og 14. desember á Þórshöfn.
Hægt er að bóka viðtal vegna barnaverndar, fjárhagsaðstoðar og félagslegrar ráðgjafar.
Félagsleg ráðgjöf tekur til þess að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar. Í félagslegri ráðgjöf getur falist ráðgjöf t.d. vegna fjárhagsvanda, húsnæðisleysis, atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, öldrunar, fjölskylduvanda, uppeldisvanda, skilnaðarmála, ættleiðingarmála og áfengis- og fíkniefnavanda.
Tímapantanir í síma 464-6100 eða á netfangið signy@nortdurthing.is