Vigdísartré í Kirkjuskógi
Á laugardaginn voru gróðursett þrjú tré í skóginum við kirkjuna á Þórshöfn. Þetta er gert til heiðurs frú Vigdísi Finnbogadóttur og voru gróðursett tré út um allt land. Um viðburðinn segir þetta:
Þann 29. júní verða liðin 35 ár frá því Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands, fyrst kvenna í heiminum til að verða lýðræðislega þjóðkjörin forseti, og 100 ár frá því konur hér á landi fengu kosningarétt.
Skógrækt, landgræðsla og náttúruvernd hafa verið Vigdísi afar hugleikin og hefur hún haldið þeim málefnum á lofti á opinberum vettvangi. Eitt besta dæmið þar að lútandi er að snemma í forsetatíð sinni tók hún upp þann sið að gróðursetja þrjú tré á þeim stöðum sem hún heimsótti eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir drengi og eitt fyrir komandi kynslóðir. Þótti því upplagt að skógræktarfélögin myndu marka þessi tímamót með gróðursetningu og fylgja fordæmi Vigdísar um trén þrjú. Skógræktarfélögin og sveitarfélög um land allt, með stuðningi Skógræktarfélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga, ásamt Skógrækt ríkisins, Landgræðslu ríkisins, Yrkjusjóði og Landgræðslusjóði, standa að gróðursetningunni.
Nokkrar vaskar konur skunduðu upp í skóg ásamt Hildi Stefánsdóttur sem er í stjórn Skógræktarfélagi Norður-Þingeyinga og Ingólfi skrúðgarðsmeistara. Kamil setti niður tré fyrir drengi, Súsanna setti niður tré fyrir stúlkur og Aneta, sem á von á sínu sjötta barni, setti niður tré fyrir komandi kynslóðir. Til gamans má geta að eitt af síðustu embættisverkum frú Vigdísar var heimsókn til Þórshafnar þann 19 júlí árið 1996.
Frú Vigdís forseti á Þórshöfn árið 1996
Ljósmyndir Gréta Bergrún