Viltu funda með matvælaráðherra?
28.08.2024
Fréttir
Matvælaráðherra heimsækir landsbyggðina.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun heimsækja Þórshöfn þann 5. september n.k.
Heimsóknirnar út á land eru gerðar með það að markmiði að íbúar geti hitt ráðherra og átt milliliðalausar samræður um þau málefni sem heyra undir ráðherra.
Hægt er bóka fund með því að senda póst á mar@mar.is eða bjarki.hjorleifsson@mar.is
Bjarkey mun heimsækja Þórshöfn fimmtudaginn 5. september og verða í Kistunni, Fjarðarvegi 5