Fara í efni

Vinnudagurinn á Barnabóli um síðustu helgi tókst vel

Fundur
Síðastliðinn laugardag var unnið hörðum höndum í leikskólalóðinni í dásemdar veðri. George Hollanders og Sarka komu og stjórnuðu góðum hóp foreldra og velunnara leikskólans. Afraksturinn var glæsileg Síðastliðinn laugardag var unnið hörðum höndum í leikskólalóðinni í dásemdar veðri. George Hollanders og Sarka komu og stjórnuðu góðum hóp foreldra og velunnara leikskólans. Afraksturinn var glæsileg klifurbraut, rennibraut, eldstæði, beð og ýmsikonar smá verkefni hér og þar. Þetta var seinna skiptið sem haldin er svona vinnudagur en fyrr í sumar var smíðað stórkemmtilegt leiktæki úr rekavið, útbúin bryggja við bátinn úr vörubrettum, tæki færð úr stað, sandkössum breytt o.fl. Nú eigum við stórglæsilega leikskólalóð sem er allt í senn flott, skemmtileg, spennandi og krefjandi fyrir börnin.