VÞ kaupir sumarbústað í Kjarnabyggð
30.03.2012
Fundur
Verkalýðsfélag Þórshafnar hefur fest kaup á sumarbústað í Kjarnabyggð í Kjarnaskógi við Akureyri. Um er að ræða bústað sem áður var í eigu Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis, við Götu norðurljósanna n
Verkalýðsfélag Þórshafnar hefur fest kaup á sumarbústað í Kjarnabyggð í Kjarnaskógi við Akureyri. Um er að ræða bústað sem áður var í eigu Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis, við Götu norðurljósanna númer 3. Fyrir átti VÞ bústað númer 10 við sömu götu sem hefur verið mjög vel nýttur af félagsmönnum. Er það von stjórnar VÞ að nýji bústaðurinn nýtist félagsmönnum einnig vel.