Fara í efni

14. fundur stjórnar Jarðasjóðs

22.10.2024 16:00

Fundur í stjórn Jarðasjóðs

14. fundur stjórnar Jarðasjóðs, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn, þriðjudaginn 22 október 2024. Fundur var settur kl. 16:00.

Mættir voru: Júlíus Sigurbjartsson formaður, Mirjam Blekkenhorst, Ragnar Skúlason, Þórir Jónsson, Ævar Marinósson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Spurt var hvort gerðar væru athugasemdir við fundarboð. Svo var ekki og fundur settur.

Fundargerð

1. Tilboð Six Rivers í allan veiðirétt á félagssvæði Veiðifélags Svalbarðsár
Borist hefur meðfylgjandi tilboð í veiðirétt á félagssvæði Veiðifélags Svalbarðsár.

Bókun um afgreiðslu: Kjörnum fulltrúa falið að gera stjórn sjóðsins grein fyrir niðurstöðu fundar veiðifélags Svalbarðsár um tilboðið.

Samþykkt samhljóða.

2. Fyrirspurn vegna uppsetningar vindmælamasturs wpd
Fyrirtækið wpd óskar eftir formlegu samþykki Jarðasjóðs á staðsetningu vindmælamasturs samkvæmt staðsetningu á meðfylgjandi korti.

Bókun um afgreiðslu: Stjórnin samþykkir beiðnina fyrir sitt leiti eins og hún kemur fram í bréfi wpd.

Samþykkt samhljóða.

3. Málefni Flögu
Umræða um málefni og framtíð Flögu.

Bókun um afgreiðslu: Formanni falið að gera drög að nýjum samningi við Akur Organic og drög að auglýsingu um leigu á jörðinni. Formaður sendir stjórnarmönnum drög í tölvupósti.

Samþykkt samhljóða.

4. Önnur mál
Rætt um eignarhald á jörðinni Brimnes i fyrrum Sauðaneshreppi.

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:15

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?