Jólaball sem foreldrafélag Grunnskólans á Þórshöfn stendur fyrir árlega verður kl. 15 á annan í jólum. Hvetjum foreldra til að koma og skemmta sér með börnunum sínum, það verður dansað í kring um jólatréið og rauðklæddir gestir mæta á svæðið.
Nokkrir velunnar Nausts gáfu heimilinu rjúpur svo að íbúar fá að njóta rjúpna þessi jólin. Færum við bestu þakkir til Ásgeirs, Sigurðar, Péturs, Kristbjörns, Halldórs, Einars Vals, Kristins og Rúnars.
Naust óskar öllum íbúum Langanesbyggðar og nágrennis Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.